Notkunarskilmálar
Gildir frá 16. október 2026 · Útgáfa 1.0
1. Um þjónustuna
Efstahilla (efstahilla.is) er stafrænt safnkerfi þar sem einstaklingar og fyrirtæki skrá, varðveita og eftir atvikum sýna, selja eða leigja listaverk, bækur, vín, úr, antík og aðra verðmæta muni. Þjónustan er rekin af [NAFN REKSTRARAÐILA, kt. 000000-0000, HEIMILISFANG] („Efstahilla“, „við“). Með því að stofna aðgang eða nota vefinn samþykkir þú þessa skilmála.
2. Aðgangur
- Til að skrá verk þarf aðgang með netfangi og lykilorði. Þú berð ábyrgð á að lykilorðið þitt sé öruggt og á allri notkun undir aðganginum þínum.
- Þú þarft að vera 18 ára eða eldri, eða nota þjónustuna með leyfi forráðamanns.
- Þú mátt ekki stofna aðgang fyrir aðra án heimildar þeirra eða villa á þér heimildir.
- Sýnireikningurinn („Prófa án skráningar“) er sameiginlegur og endurstillist reglulega. Ekki skrá þar neitt sem þú vilt halda.
3. Efnið þitt
Allt sem þú skráir (lýsingar, myndir, verðmöt, próvenans, skjöl) er áfram þín eign. Þú veitir Efstuhillu leyfi til að geyma, birta og vinna úr efninu að því marki sem þarf til að veita þjónustuna, til dæmis til að sýna verk sem þú hefur opnað, útbúa miða, bók eða útflutning.
- Þú ábyrgist að þú hafir rétt til að nota myndirnar og upplýsingarnar sem þú setur inn og að þær brjóti ekki á rétti annarra.
- Verk eru lokuð þegar þau eru skráð. Það sem þú opnar („Opið“, „Til sölu“, „Til leigu“) sést öllum sem hafa hlekkinn á safnið þitt og getur birst í leitarvélum og á samfélagsmiðlum.
- Efstahilla tekur ekki ábyrgð á réttmæti skráninga, verðmata eða upplýsinga sem notendur skrá.
4. Torgið „Hver er höfundurinn?“
Torgið er opið öllum til lesturs. Það sem þú setur þar inn, myndir, spurningar og svör, er opinbert og má deila. Svör annarra eru tilgátur, ekki staðfest höfundargreining. Við áskiljum okkur rétt til að fjarlægja efni sem er óviðeigandi, villandi, auglýsing eða brýtur á rétti annarra, og til að loka aðgangi sem misnotar torgið.
5. Óheimil notkun
- Að setja inn efni sem er ólöglegt, móðgandi, villandi eða brýtur gegn höfundarrétti eða friðhelgi annarra.
- Að nota þjónustuna til að þvo peninga, selja þýfi eða muni sem þú hefur ekki heimild til að ráðstafa.
- Að reyna að komast í gögn annarra notenda, trufla rekstur þjónustunnar eða afrita hana í heild.
6. Þjónustubeiðnir og markaður
Þú getur beðið Efstuhillu um verðmat, römmun, viðgerð, ljósmyndun, merkingu, bók, að finna kaupanda og fleira. Slík beiðni er ósk um samband, ekki pöntun; verð og skilmálar hverrar þjónustu eru samþykkt sérstaklega áður en verk hefst. Þegar gestur sendir tilboð, fyrirspurn eða leigubeiðni um opið verk kemur Efstahilla skilaboðunum áleiðis til eiganda. Efstahilla er ekki aðili að kaupum, sölu eða leigu milli notenda nema um það sé samið sérstaklega.
7. Skipti (dánarbú, þrotabú og fleira)
Skipti-hlutinn er vinnuskjal til að halda utan um hluti, aðila og óskir. Hann kemur ekki í stað lögmæltrar skiptameðferðar, erfðafjárskýrslu, ákvarðana skiptastjóra eða samninga milli aðila, og Efstahilla ber enga ábyrgð á því hvernig hlutum er endanlega ráðstafað.
8. Verð og áskrift
Í beta er þjónustan ókeypis. Þegar áskriftarleiðir taka gildi birtist verðskrá á vefnum og þú velur sjálf(ur) hvort þú uppfærir. Frí leið getur verið takmörkuð við ákveðinn fjölda verka. Áskrift er greidd fyrirfram fyrir hvert tímabil og má segja upp hvenær sem er; uppsögn tekur gildi í lok greidds tímabils. Við tilkynnum verðbreytingar með að minnsta kosti 30 daga fyrirvara með tölvupósti.
9. Varðveisla og lokun aðgangs
- Þú getur hvenær sem er sótt safnið þitt sem Excel-skrá og beðið um að aðganginum sé eytt (sjá persónuverndarstefnu).
- Við getum lokað aðgangi sem brýtur þessa skilmála, að undangenginni viðvörun þegar það á við.
- Ef þjónustunni verður hætt fá notendur að minnsta kosti 60 daga fyrirvara til að sækja gögnin sín.
10. Ábyrgðartakmörkun
Þjónustan er veitt eins og hún er. Við leggjum okkur fram um að hún sé aðgengileg og gögn örugg, með daglegum afritum, en getum ekki ábyrgst að hún sé laus við truflanir eða villur. Verðmöt og upplýsingar í kerfinu eru leiðbeinandi og koma ekki í stað faglegs mats, tryggingamats eða lögfræðiráðgjafar. Ábyrgð Efstuhillu takmarkast við þá fjárhæð sem þú hefur greitt fyrir þjónustuna síðustu 12 mánuði, nema um ásetning eða stórfellt gáleysi sé að ræða.
11. Breytingar á skilmálum
Við getum breytt skilmálunum. Verulegar breytingar tilkynnum við með tölvupósti eða á vefnum með að minnsta kosti 14 daga fyrirvara. Haldir þú áfram að nota þjónustuna eftir að breytingar taka gildi samþykkir þú þær.
12. Lög og ágreiningur
Um skilmálana gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur sem ekki tekst að leysa með samtali má bera hann undir Héraðsdóm Reykjavíkur. Neytendur geta einnig leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.
13. Hafa samband
Spurningar um skilmálana: [NETFANG].
[Draft translation: a lawyer should review it and decide which language version governs.]
Terms of Service
Effective from 16 October 2026 · Version 1.0
1. About the service
Topshelf (topshelf.is) is a digital collection system where individuals and businesses register, preserve and, as the case may be, display, sell or rent out artworks, books, wine, watches, antiques and other valuable objects. Topshelf is the same service as Efstahilla (efstahilla.is) in Icelandic. The service is operated by [OPERATOR NAME, ID NO. 000000-0000, ADDRESS] (“Topshelf”, “we”). By creating an account or using the website, you accept these terms.
2. Account
- To register items you need an account with an email address and a password. You are responsible for keeping your password secure and for all use of your account.
- You must be 18 years of age or older, or use the service with the permission of a guardian.
- You may not create an account for others without their authorisation or misrepresent who you are.
- The demo account (“Try it now without signing up”) is shared and is reset regularly. Do not register anything there that you want to keep.
3. Your content
Everything you register (descriptions, images, valuations, provenance, documents) remains your property. You grant Topshelf permission to store, display and process the content to the extent necessary to provide the service, for example to show items you have made public, or to produce labels, a catalogue book or an export.
- You warrant that you have the right to use the images and information you upload and that they do not infringe the rights of others.
- Items are private when they are registered. Anything you make public (“Public”, “For sale”, “For rent”) is visible to anyone who has the link to your collection and may appear in search engines and on social media.
- Topshelf accepts no responsibility for the accuracy of entries, valuations or information registered by users.
4. The Forum “Who made it?”
The Forum is open for anyone to read. What you post there (images, questions and answers) is public and may be shared. Answers from others are conjecture, not a confirmed attribution. We reserve the right to remove content that is inappropriate, misleading, advertising or infringes the rights of others, and to close accounts that misuse the Forum.
5. Prohibited use
- Posting content that is illegal, offensive or misleading, or that infringes the copyright or privacy of others.
- Using the service to launder money or to sell stolen goods or items you are not authorised to dispose of.
- Attempting to access other users’ data, disrupting the operation of the service or copying it in its entirety.
6. Service requests and marketplace
You can ask Topshelf for a valuation, framing, restoration, photography, labelling, a catalogue book, finding a buyer and more. Such a request is a request to be contacted, not an order; the price and terms of each service are agreed separately before any work begins. When a visitor sends an offer, an enquiry or a rental request about a public item, Topshelf passes the message on to the owner. Topshelf is not a party to any purchase, sale or rental between users unless specifically agreed.
7. Division (estates, bankruptcy estates and more)
The Division feature is a working document for keeping track of items, parties and wishes. It does not replace statutory division proceedings, an inheritance tax return, decisions of an estate administrator or agreements between the parties, and Topshelf bears no responsibility for how items are finally disposed of.
8. Prices and subscription
During the beta the service is free of charge. When subscription plans take effect, a price list will be published on the website and you decide yourself whether to upgrade. A free plan may be limited to a certain number of items. Subscriptions are paid in advance for each period and can be cancelled at any time; cancellation takes effect at the end of the paid period. We will notify you of price changes by email at least 30 days in advance.
9. Retention and closing your account
- You can download your collection as an Excel file at any time and ask for your account to be deleted (see the privacy policy).
- We may close an account that breaches these terms, after prior warning where appropriate.
- If the service is discontinued, users will be given at least 60 days’ notice to download their data.
10. Limitation of liability
The service is provided as is. We do our best to keep it available and the data secure, with daily backups, but we cannot guarantee that it will be free of interruptions or errors. Valuations and information in the system are for guidance only and do not replace a professional appraisal, an insurance valuation or legal advice. Topshelf’s liability is limited to the amount you have paid for the service in the last 12 months, except in cases of intent or gross negligence.
11. Changes to the terms
We may change these terms. We will give notice of significant changes by email or on the website at least 14 days in advance. If you continue to use the service after the changes take effect, you accept them.
12. Governing law and disputes
These terms are governed by Icelandic law. If a dispute arises that cannot be resolved through discussion, it may be brought before the District Court of Reykjavík (Héraðsdómur Reykjavíkur). Consumers may also refer the matter to the Complaints Committee on the Purchase of Goods and Services (Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa).
13. Contact
Questions about these terms: [EMAIL].